Cantoque Ensemble: Aldasöngur og íslenskar gersemar
Cantoque Ensemble syngur tvenna tónleika með íslenskri kórtónlist. Fyrri tónleikarnir: Aldasöngur og íslenskar gersemar verða með þjóðlegu sniði þar sem þjóðlagaútsetningar Hafliða Hallgrímssonar og Hjálmars H. Ragnarssonar veita ramma utan um aðrar íslenskar tónsmíðar fyrir kór sem sækja innblástur sinn í íslenskan þjóðararf. Miðpunktur tónleikanna er verk Jóns Nordal; Aldasöngur við texta Bjarna Jónssonar en verkið var einmitt samið fyrir Sumartónleika í Skálholti og fékk frumflutning sinn þar árið 1986.
Í tilefni að flutningi Aldasöngs eftir Jón Nordal hefur Cantoque Ensemble pantað tvö ný verk við önnur erindi úr ljóði Bjarna, Aldasöng. Verkin eru eftir Steinar Loga Helgason og Hafstein Þórólfsson og verða flutt á báðum tónleikum Cantoque. Steinar Logi er einnig stjórnandi Cantoque á tónleikunum.