Fara í efni

Línur, flækjur og allskonar

Til baka í viðburði
Hvenær
26. nóvember - 5. mars
Hvar
Duusgata 2-8, Keflavík, Iceland
Klukkan
14:00-17:00

Línur, flækjur og allskonar

Línur, flækjur og allskonar, opnar hjá Listasafni Reykjanesbæjar laugardaginn 26. nóvember 2022 kl. 14:00.

Guðrún Gunnarsdóttir, er frumkvöðull á sviði þráðlistar, sýning Guðrúnar gefur góða mynd af þróun listamannsins frá myndvefnaði á áttunda áratug síðustu aldar, til þrívíddar mynda sem einkennir myndlist hennar í dag.

Þráðlist eins og sú sem Guðrún Gunnarsdóttir ástundar er ótvírætt þrívíddarlist í klassískum skilningi, þótt listakonan gangi í berhögg við ýmsar siðvenjur sem fylgt hafa slíkri list frá örófi alda. Til að mynda hirðir hún ekki um að setja verk sín á stalla, og þar með bæði upphefja þau og staðsetja utan seilingar. Þess í stað fá þau að leika lausum hala í námunda við okkur, hanga ofan úr lofti, fikra sig ofur varlega upp og niður veggi, eða mynda smágerðar lífrænar einingar niður við fótskör. Og í stað þess að kalla á athygli, eins og stallsettir skúlptúrar óneitanlega gera, eru verk Guðrúnar gerð til að birtast okkur eins og fyrir tilviljun, jafnvel koma þægilega á óvart, ekki ósvipað og ljóðlínur með óvæntu niðurlagi.

Sýningarstjóri er Aðalsteinn Ingólfsson, listfræðingur.

1000

Aðrir viðburðir

5. jún

Opnun sumarsýninga Byggðasafns og Listasafns Reykjanesbæjar

Duus Safnahús / Duus Museum, Duusgata, Reykjanesbær
5. jún

Eagles - Bestu lög Eagles

Café Bryggjan, Miðgarður, Grindavík
6. jún

Bakkalábandið - Lagst að bryggju

Café Bryggjan, Miðgarður, Grindavík
17. jún

Þrautaleikur fjölskyldunnar

Reykjanesbær