Fara í efni

Bríet í Hljómahöll

Til baka í viðburði
Hvenær
fimmtudagur, 28 janúar
Hvar
Hljómahöll, Hjallavegur, Keflavík
Klukkan
20:00-21:30

Bríet í Hljómahöll

Það er Hljómahöll mikil ánægja að tilkynna fyrstu tónleika ársins!

Þann 28. janúar mun söngkonan Bríet koma fram, en Bríeti þarf vart að kynna fyrir landsmönnum. Bríet hefur verið áberandi undanfarin ár en segja má að plata hennar Kveðja, Bríet sem kom út síðast liðið haust hafi slegið í gegn hjá þjóðinni en platan vermdi um tíma öll toppsætin á spilunarlistum Spotify. Bríet mun koma fram ásamt gítarleikara og munnhörpuleikara á tónleikunum.

 Vegna aðstæðna og sóttvarnarreglna í samfélaginu eru aðeins 100 miðar í boði á þessa tónleika fyrir fullorðna. Gestir þurfa að bera grímu og sitja í númeruðum sætum. Að auki verða 100 miðar í boði fyrir börn sem eru fædd árið 2005 og síðar. Athugið að framvísa þarf skilríkjum til að sýna fram á að miðategund stangist ekki á við aldur gests.

Á tónleikunum verður hvorki áfengissala né hlé. Tónleikarnir verða um það bil ein klukkustund að lengd.

Miðasala hefst fimmtudaginn 21. janúar kl. 13:00. Tónleikarnir fara fram í Stapa kl. 20:00. Húsið opnar kl. 19:00.
 
Hlekkur á miðasölu: https://tix.is/is/event/10861/briet
5500

Aðrir viðburðir

5. jún

Opnun sumarsýninga Byggðasafns og Listasafns Reykjanesbæjar

Duus Safnahús / Duus Museum, Duusgata, Reykjanesbær
5. jún

Eagles - Bestu lög Eagles

Café Bryggjan, Miðgarður, Grindavík
6. jún

Bakkalábandið - Lagst að bryggju

Café Bryggjan, Miðgarður, Grindavík
17. jún

Þrautaleikur fjölskyldunnar

Reykjanesbær