Fara í efni

Mývatnssveit - töfrar haustsins

Til baka í viðburði
Hvenær
laugardagur, 5 september
Hvar
Klukkan
08:00-16:00

Mývatnssveit - töfrar haustsins

Dagsferð frá Akureyri sem hentar öllum aldurshópum. Lagt af stað frá Akureyri kl.08:00. Gangan hefst við upplýsingamiðstöðina í Reykjahlíð og endar við Birtingatjörn á Kálfaströnd, samtals 13 km um einstaklega fjölbreytt landslag. Gengið eftir slóðum og stígum alla leið en á köflum eru þeir grófir og ójafnir þannig að nauðsynlegt er að vera í góðum skóm og göngustafir geta komið sér vel. Gangan skiptist upp í nokkra leggi:

  • Reykjahlíð - Grjótagjá, ca 2 km.
  • Grjótagjá - Hverfjall, ca 2 km.
  • Hverfjall - Dimmuborgir, ca 6 km. Þátttakendur velja hvort þeir ganga yfir fjallið eða meðfram fjallinu.
  • Dimmuborgir - Birtingatjörn, ca 3 km.

Rútan fer á milli allra áfangastaða þannig að þátttakendur geta valið hvaða leggi þeir ganga. 

Þetta er ferð með leiðsögn á íslensku. Á leiðinni verður sagt frá sögu og jarðfræði svæðisins.

Áætluð koma til Akureyrar er milli kl. 16:30 og 17:00

9.900

Aðrir viðburðir

18. jún

Leikhópurinn Lotta sýnir Bakkabræður

Sauðárkrókur
24. jún

Hjartanæring á sumarsólstöðum

Lystigarður Akureyrar, Eyrarlandsvegur, Akureyri