Hvammstangi International Puppetry Festival
Hvammstangi International Puppet Festival er ný brúðulistahátíð á Hvammstanga, Norðurlandi vestra, þar sem brúðuleiksýningar og -kvikmyndir verða í hávegum hafðar. Brúðulistahátíðin HIP verður haldin 9. - 11. október, á hátíðinni verður boðið upp á 12 sýningar með listamönnum af 9 þjóðernum, úrvali vinnusmiðja fyrir fólk á öllum aldri, bæði byrjendur og atvinnumenn, og úrval brúðubíómynda sem eru sérvaldar af Handmade Puppet Dreams,
fyrirtæki Heather Henson í Bandaríkjunum. Meira en 60% viðburða hátíðarinnar eru ókeypis fyrir áhorfendur. Alla dagskrá hátíðarinnar má nálgast á www.thehipfest.com.
Verðlaunaleikhúsið Handbendi Brúðuleikhús stýrir brúðulistahátíðinni HIP á Hvammstanga. Hátíðin er haldin annað hvert ár og býður m.a. upp á:
Uppfærslur á litlum – miðlungsstórum verkum eftir heimafólk og alþjóðlega listamenn
fyrir bæði börn og fullorðna.
Lifandi tónlistarviðburði.
Masterclass fyrir fagmenn og áhugasama um brúðugerð.
Sýningar og smiðjur fyrir börn og fullorðna.
Leikbrúðu-stuttmyndir og myndir í fullri lengd.
Fyrirlestrar og viðburðir til tengslamyndunar, þar á meðal UNIMA focus group.
Handbendi brúðuleikhús hefur einnig verið með sýningar, viðburði og smiðjur á Íslandi ogvíðsvegar í heiminum, og öll vinna farið fram í vinnustofu Handbendi brúðuleikhúss á Hvammstanga.
Styrktaraðilar HIP eru: RANNÍS, Barnamenningarsjóður, Hótel Laugarbakki, UNIMA Íslands, Sjávarborg, Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra og Húnaþing vestra.