Fara í efni

Endimörk alheimsins: Náttúra og líf við ysta haf

Til baka í viðburði
Hvenær
8.-12. ágúst
Hvar
Raufarhöfn, Norðurþing, Northeastern Region, 675, Iceland
Klukkan
09:00-15:00

Endimörk alheimsins: Náttúra og líf við ysta haf

Dagana 8.-12. ágúst býður Myndlistaskólinn í Reykjavík upp á áhugavert námskeið á Melrakkasléttu í einu af nyrstu byggðarlögum landsins, rétt sunnan við Heimskautsbaug.

Námskeiðið hentar fólki á öllum aldri en markmiðið er að kynna myndlistina sem verkfæri til rannsóknar og skoðunar.
Viðfangsefnið verður hin harðbýla og töfrandi náttúra svæðisins. Þátttakendur fá einnig innsýn í menningu, sögu og samfélag sem enn blómstrar á þessu hrjóstruga en hlunnindaríka svæði.

Sjónum verður jöfnum höndum beint að gróðri jarðar, fjörunni og hinum fjölmörgu, ísöltu lónum sem einkenna svæðið. Fuglalífi, smádýrum og plöntum verður gefinn gaumur og fylgst með því hvernig fiskurinn hegðar sér á ólíkum tímum sólarhringsins.

Þeir sem hafa áhuga á veiðiskap munu því ennfremur finna ýmislegt við sitt hæfi.

Teikniblokk, blýantur og vatnslitir verða aðalverkfærin en vasaljós, stækkunargler, smásjá, myndavél og önnur þessháttar tól eiga fullt erindi í verkfærakistu þátttakenda – að ógleymdri veiðistönginni.

Leiðbeinendur verða myndlistarmennirnir Sigtryggur Bjarni Baldvinsson, Pétur Magnússon og Pétur Örn Friðriksson. Ásamt þeim munu ýmsir gestir líta við. Til dæmis mun Pedro Rodrigues líffræðingur kynna Rannsóknastöðina Rif og það vísindastarf sem þar fer fram en verkefni stöðvarinnar er að vakta breytingar á lífríki og náttúru svæðisins.

Bækistöð og vinnuaðstaða verður í gamla síldarbragganum, Óskarsstöð, nýrri listamiðstöð á Raufarhöfn.

Innifalið í verðinu er hádegis- og kvöldverður í fimm daga en námskeiðinu lýkur með veislu að kvöldi föstudagsins 12. ágúst. Fólk er hvatt til að kynna sér styrki stéttarfélaga.

Ýmsir gistimöguleikar eru á svæðinu. Skólinn getur útvegað gistingu á hagstæðu verði í íbúðum á Raufarhöfn en verðið ræðst af fjölda. Áhugasamir sendi póst á Snorra Hilmarsson, snorrihilmars@simnet.is.

Námskeiðið er haldið í samvinnu við Rannsóknastöðina Rif og Heimsenda, menningarfélag Óskarsbragga á Raufarhöfn með tilstyrk frá Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra.

Frekari upplýsingar og skráning á mir.is

98.000 kr.

Aðrir viðburðir

18. jún

Leikhópurinn Lotta sýnir Bakkabræður

Sauðárkrókur
24. jún

Hjartanæring á sumarsólstöðum

Lystigarður Akureyrar, Eyrarlandsvegur, Akureyri