Fara í efni

Endimörk alheimsins – náttúra og líf við ysta haf

Til baka í viðburði
Hvenær
10.-14. ágúst
Hvar
Raufarhöfn
Klukkan

Endimörk alheimsins – náttúra og líf við ysta haf

Dagana 10.-14. ágúst býður Myndlistaskólinn í Reykjavík upp á áhugavert námskeið á Melrakkasléttu í einu af nyrstu byggðarlögum landsins, rétt sunnan við Heimskautsbaug.

Námskeiðið hentar fólki á öllum aldri en markmiðið er að kynna myndlistina sem verkfæri til rannsóknar og skoðunar. Viðfangsefnið verður hin harðbýla en töfrandi náttúra svæðisins. Þátttakendur fá einnig innsýn í menningu, sögu og samfélag sem enn blómstrar á þessu hrjóstruga en hlunnindaríka svæði. Sjónum verður jöfnum höndum beint að gróðri jarðar, fjörunni og hinum fjölmörgu, ísöltu lónum sem einkenna svæðið. Fuglalífi, smádýrum og plöntum verður gefinn gaumur og fylgst með því hvernig fiskurinn hegðar sér á ólíkum tímum sólarhringsins. Þeir sem hafa áhuga á veiðiskap munu því ennfremur finna ýmislegt við sitt hæfi.

Teikniblokk, blýantur og vantslitir verða aðalverkfærin en vasaljós, stækkunargler, smásjá, myndavél og önnur þessháttar tól eiga fullt erindi í verkfærakistu þátttakenda – að ógleymdri veiðistönginni.

Leiðbeinendur verða myndlistarmennirnir Sigtryggur Bjarni Baldvinsson og Þórarinn Blöndal (sem jafnframt eru dellumenn um silungsveiði).

Ýmsir gestir munu líta við. Hrönn Guðmundsdóttir líffræðingur mun kynna Rannsóknastöðina Rif og það vísindastarf sem þar fer fram en verkefni stöðvarinnar er að vakta breytingar á lífríki og náttúru svæðisins.

Bækistöð og vinnuaðstaða verður í gamla síldarbragganum Óskarsstöð á Raufarhöfn en námskeiðið er fyrsti viðburðurinn nýrri menningarmiðstöð sem verður rekin í húsinu. Þetta er sögufrægt hús, byggt árið 1949 af Óskari Halldórssyni ,,Íslandsbersa” og eitt af síðustu húsum sem flutt voru með seglskipi frá Noregi en húsið hefur verið gert upp á undanförnum árum.

Námskeiðið hefst að morgni mánudagsins 10. ágúst og því lýkur með veislu að kvöldi föstudagsins 14. ágúst.

Verð: 96.000 kr.

Innifalið í verðinu er hádegis- og kvöldverður í fimm daga.

Fólk er einnig hvatt til að kynna sér styrki stéttarfélaga.

Ýmsir gistimöguleikar eru á svæðinu. Skólinn getur útvegað gistingu á hagstæðu verði í íbúðum á Raufarhöfn en verðið ræðst af fjölda. Áhugasamir sendi póst á skolastjori@mir.is.

Námskeiðið er haldið í samvinnu við Rannsóknastöðina Rif og Heimsenda, menningarfélag Óskarsbragga á Raufarhöfn með tilstyrk frá Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra.        

96000

Aðrir viðburðir

18. jún

Leikhópurinn Lotta sýnir Bakkabræður

Sauðárkrókur
24. jún

Hjartanæring á sumarsólstöðum

Lystigarður Akureyrar, Eyrarlandsvegur, Akureyri