Fara í efni

Leikhópurinn Lotta sýnir Bakkabræður

Til baka í viðburði
Hvenær
21. júní - 26. ágúst
Hvar
Elliðaárdalur
Klukkan
18:00-19:59

Leikhópurinn Lotta sýnir Bakkabræður

Leikhópurinn Lotta er landsmönnum að góðu kunnur, en hópurinn hefur frá árinu 2007 ferðast með sýningar sínar um landið þvert og endilangt. Lotta hefur sérhæft sig í utandyra sýningum á sumrin og ferðast nú 14. sumarið í röð með glænýjan fjölskyldusöngleik.

Í sumar setur Leikhópurinn Lotta upp fjölskyldusöngleik byggðan á þjóðsögunum um Bakkabræður. Í meðförum Lottu má segja að Bakkabræður fái tækifæri til að segja okkur sögu sína á sínum forsendum og leiðrétta þær rangfærslur sem hafa ratað í þjóðsögurnar. Bakkabræður eru 13. frumsamdi söngleikurinn sem Leikhópurinn Lotta setur upp, að venju er fjörið í fyrirrúmi, mikið af gríni, glensi og skemmtilegum lögum þó undirtónninn sé alvarlegur og boðskapurinn fallegur.

Bakkabræður er sýning sem er hugsuð fyrir alla aldurshópa og eiga þar fullorðnir jafnt sem börn að geta skemmt sér saman. Þar sem sýningarnar eru utandyra er um að gera að klæða sig eftir veðri, pakka smá nesti og hella vatni í brúsa og halda svo á vit ævintýranna í Ævintýraskóginum.

Að vanda sýnir Leikhópurinn Lotta um allt land í sumar og fylgir að sjálfsögðu fyrirmælum sóttvarnarlæknis. Hægt er að tryggja sér miða á: https://tix.is/is/buyingflow/tickets/10035/
Miðaverð er 2900 kr.

HLÖKKUM TIL AÐ SJÁ YKKUR!

Leikstjórn: Þórunn Lárusdóttir.

Leikarar: Andrea Ösp Karlsdóttir, Huld Óskarsdóttir, Júlí Heiðar Halldórsson, Sigsteinn Sigurbergsson, Stefán Benedikt Vilhelmsson og Viktoría Sigurðardóttir.

Leikskáld: Anna Bergljót Thorarensen.

Höfundar tónlistar: Baldur Ragnarsson, Rósa Ásgeirsdóttir, Þórður Gunnar Þorvaldsson.

Höfundar lagatexta: Anna Bergljót Thorarensen og Baldur Ragnarsson.

Hljóðhönnun og útsetningar: Þórður Gunnar Þorvaldsson.

Búningahönnun: Kristína R. Berman.

Danshöfundur: Viktoría Sigurðardóttir.

Leikmyndahönnun: Andrea Ösp Karlsdóttir og Sigsteinn Sigurbergsson.

Leikmunir: hópurinn

2900 kr.

Aðrir viðburðir