Fara í efni

Góðan daginn faggi í Sláturhúsinu á Egilsstöðum

Til baka í viðburði
Hvenær
föstudagur, 23 september
Hvar
Sláturhúsið Egilsstöðum
Klukkan
20:00-22:00

Góðan daginn faggi í Sláturhúsinu á Egilsstöðum

Góðan daginn faggi sló sannarlega í gegn í Þjóðleikhúsinu á liðnu leikári, með yfir 40 uppseldum sýningum, einróma lofi gagnrýnenda og Grímutilnefningum. Sýningin fer í leikferð um landið í haust þar sem verður bæði boðið upp á sýningar fyrir almenning og boðssýningar fyrir elstu bekki grunnskóla.
 
Sýnt verður í Sláturhúsinu á Egilsstöðum 23. september kl. 20 og verður boðið upp á stuttar umræður fyrir áhugasama að sýningu lokinni.

Góðan daginn faggi er sjálfsævisögulegur heimildasöngleikur þar sem fertugur hommi leitar skýringa á skyndilegu taugaáfalli sem hann fékk upp úr þurru einn blíðviðrisdag. Eftir vandasamann leiðangur um innra líf sitt og fortíð og samtíma rekst hann á rætinn hommahatara á óvæntum stað.
 
Sýningin er berskjaldandi leiðangur um skömm og mennsku og einlægt samtal við drauminn um að tilheyra. Hlátur, grátur og glæný söngleikjatónlist sem lætur enga ósnortna.
 
https://tix.is/is/buyingflow/tickets/10450/

Aðrir viðburðir

1. maí - 30. sep

Fjarðarbyggðarflakk fjölskylduleikur

Fjarðabyggð
1. maí - 25. sep

Perlur Fljótsdalshéraðs

Egilsstaðir
1. jún - 25. sep

Heiðarbýlin í göngufæri

Fljótsdalshérað