Fara í efni

Ævin­týri und­ir Dyr­fjöll­um - 3 mismunandi dagsetningar

Til baka í viðburði
Hvenær
4. febrúar - 30. apríl
Hvar
Klukkan
07:00-23:00

Ævin­týri und­ir Dyr­fjöll­um - 3 mismunandi dagsetningar

Ævin­týri und­ir Dyr­fjöll­um - 3 mismunandi dagsetningar

19. March, 2021 - 11. April, 2021

Fáir staðir á Íslandi eru þekktari fyrir mikla sumarfegurð en Borgarfjörður eystra, með allar sínar náttúruperlur nær og fjær eins og glitrandi festi sem laðar til sín ferðalanga alls staðar að úr heiminum! En fegurðin er að sjálfsögðu ekki eingöngu bundin við sumarið því vetrarfegurðin er ekki síðri.

Og um það snýst þessi ferð, að upplifa svæðið í vetrarbúningi; Dyrfjöllin frá öllum hliðum, náttúruundrið Stórurð og síðan Víknaheiðina, en njóta líka rómaðrar gestrisni heimamanna í góðri aðstöðu á gistihúsinu Blábjörgum. Þátttakendur þurfa að vera í ágætu skíðagönguformi og þarna verður farið um á ferðaskíðum (stálkanta utanbrautargönguskíðum). Fljúgðu áhyggjulaus inn í ævintýrið okkar fyrir austan með Air Iceland Connect: Reykjavík – Egilsstaðir – Reykjavík

Þetta er svo sannarlega ein með öllu, MJÖG MIKIÐ innifalið: Flug, allur akstur, allar máltíðir, gisting og leiðsögn.

Smelltu á hlekkina hér fyrir neðan fyrir frekari upplýsingar og bókanir.

19. – 21.3.2021 – Ferð 1

26. – 28. 3. 2021 – Ferð 2

9. – 11. 4. 2021 – Ferð 3

Aðrir viðburðir

1. maí - 30. sep

Fjarðarbyggðarflakk fjölskylduleikur

Fjarðabyggð
1. maí - 25. sep

Perlur Fljótsdalshéraðs

Egilsstaðir
1. jún - 25. sep

Heiðarbýlin í göngufæri

Fljótsdalshérað