Fara í efni

Tjaldsvæðið Hallormsstaðaskógi

Í Atlavík eru tvö salernishús með heitu og köldu rennandi vatni. Þar eru aðstaða fyrir uppvask, losun ferðasalerna, salerni fyrir fatlaði, útigrill, borð og stólar ásamt leikvelli.

Í Höfðavík eru svo þrjú salernishús með sturtu. Einnig er þar rafmagn fyrir húsbíla og vagna, losun ferðasalerna, útigrill ásamt borðum og stólum. Í Höðavík æslabelgur / hoppudýna.

Á báðum tjaldsvæðum er rusl flokkað.

Hallormsstaðaskógur er mjög vinsæll fyrir útivist enda fallegur staður. Það eru yfir 40 km af gönguleiðum á korti. Í skóginum er fjölskylduvænt Trjásafn með yfir 90 mismunandi gerðir trjáa. Þar er einnig Hótel Hallormsstaður með 100 herbergi og veitingastað.

Verð 2023
Fullorðnir: 1.900 kr á manninn
Eldri borgarar og öryrkjar: 1.300 kr
Börn: Frítt fyrir 14 ára og yngri
Rafmagn/sólahringur: 1200 kr

Sturta: 500 kr. Sjálfsalinn tekur aðeins við 100 kr mynt. Eru staðsettar í Höfðavík
Þvottavélar og þurrkarar.: 500 kr eru staðsettar í Atlavík
Eftir 4 nætur er veitt afsláttarkort sem veitir 500 kr afslátt af gistinótt af fullur verði út sumarið. Afláttarkortið gildir einnig í Vaglaskógi. 

Vefsíða hengifoss.is/en/hallormsstadur
Facebook fyrir tjaldsvæðið www.facebook.com/Atlavik/
Facebook fyrir Hallormsstað www.facebook.com/Hallormsstadur

Hvað er í boði