Ektafiskur
Eru hópar á þínum vegum? Saga Ektafisks er áhugaverð og endurspeglar mjög atvinnusögu Íslands, þar sem saltfiskur og útgerð hefur spilað stórt hlutverk. Á síðustu árum hefur það aukist að fólk stoppar við í fiskverkuninni hjá okkur til að forvitnast og skoða og það er alveg sjálfsagt og skemmtilegt! Við tökum reglulega á móti hópum í skoðunarferð um saltfiskverkunina, þá er fylgst með þegar stór þorskur er handflakaður á gamla mátann og hvernig ferlið er hvernig hágæða saltfiskur er búinn til - ferli sem tekur marga mánuði. Þið heyrið sögur úr fortíðinni sem tengist fiskverkuninni, fáið smakk af afurðum í eldhúsinu okkar - og kannski einhverju sterkara með hákarlinum!
Þeir sem eru nógu hugaðir geta orðið meðlimir í hinum feykivinsæla og eftirsóknarverða "Rotten Shark Club of Hauganes". Meðlimir klúbbsins eru ótal margir og koma allsstaðar að úr heiminum!
Eftirtaldir möguleikar eru í boði fyrir hópa:
- Fiskisúpa með brauði
- Ferð um fyrirtækið og kynnist sögu þess, smakk úr eldhúsinu ásamt hákarli og skoti (10 manns eða fleiri með amk 3 daga fyrirvara)
- Ferð um fyrirtækið og kynnist sögu þess, smakk úr eldhúsinu ásamt hákarli og skoti ásamt skemmtilegri "Fear Factor" áskorun (10 manns eða fleiri með amk 3 daga fyrirvara).
- Þriggja rétta máltíð
Hafðu endilega samband við okkur í gegnum vefinn eða í síma 466 1016 til að fá verð og nánari upplýsingar. Við hlökkum til að taka vel á móti hópnum þínum!