Byggðasafn N.-Þingeyinga
Snartarstaðir eru í 2 km fjarlægð frá Kópaskeri og er þar einstök sýning á munum úr byggðarsafni N-Þingeyinga. Á Snartarstöðum er að finna mikið úrval hannyrða af ýmsum toga, glæsilegan útsaum, vefnað, prjónles og margt fleira sérstakt og skemmtilegt. Þar eru einnig ýmsir aðrir hlutir, leikföng, brunakerra, byssur, útskurður, járnsmíði og margt fleira.
Á safninu er merkilegt bókasafn Helga Kristjánssonar í Leirhöfn en var vel þekktur bókbindari og húfugerðarmaður.
Athygli er vakin á að aðgengi fyrir fólk í hjólastólum er ekki gott.
Opið frá 15. júní til 15. ágúst. Lokað á þriðjudögum. Nánari upplýsingar á heimasíðu: www.husmus.is