Fara í efni

ÁS Guest House

ÁS er fjölskyldurekin íbúðar-og heimagisting fyrir einstaklinga, fjölskyldur og  minni hópa.  Boðið er upp á uppbúin rúm  fyrir 10 manns og í sértilfellum bætt við aukadýnum fyrir börn. Handklæði fylgja öllum rúmum. Aðgangur að þráðlausu neti fylgir gistingu.

Um er að ræða  fjögur rúmgóð svefnherbergi með fallegu útsýni yfir Eyjafjörð.  Eitt svefnherbergi er með sér baði en hin deila einu baðherbergi.  Stór sameigilneg stofa er fyrir gesti, og fallegt "retro"  eldhús með öllum algengum búnaði . Nýting og notkun eldhúss fer eftir samsetningu gistigesta hverju sinni. Útsýni úr stofu er einnig fallegt og myndar þægilegan ramma fyrir samveru og hvíld þegar dvalið er í stofunni. 

Húsið stendur við Eyrarlandsveg 33 og er staðsetning einstök beint á móti Lystigarðinum og Menntaskólanum. Í nánasta umhverfi er Sundlaug Akureyrar, Akureyrarirkja, Listagilið og mjög stutt í miðbæinn, leikhúsið og safnahverfið í gamla innbænum.

Hvað er í boði