Fara í efni

Garðalundur á Akranesi

Akranes

Garðalundur á Akranesi, eða skógræktin eins og heimamenn kalla lundinn jafnan, er skammt ofan Byggðasafnsins í Görðum og við hlið golfvallarins. Þar er eitt helsta útivistarsvæðið á Akranesi. 

Á síðustu árum hefur jafnt og þétt verið bætt við afþreyingarmöguleikum í Garðalundi en þar eru m.a. ýmis konar leiktæki fyrir börn á öllum aldri, strandblakvöllur og sparkvellir. Einnig glæsilegur grillskáli, minigolfbrautir og dótakista með alls kyns leikföngum og áhöldum til útileikja sem gestum er frjálst að nota.  

Í lundinum er fjölbreyttur gróður og margar trjátegundir. Mest áberandi eru hátt í sextíu ára gömul grenitré sem sjá til þess að þar sé alltaf gott skjól til útivistar. Einnig er að finna fallegar tjarnir í Garðalundi þar sem hægt er að veiða síli, fylgjast með öndum og fleiri fuglum, og jafnvel bregða sér á skauta á veturna.  

Vinsælt er að halda alls kyns mannfagnaði í Garðalundi s.s. afmæli og ýmsar hópsamkomur, meðal annars á 17. júní og á írskum dögum, bæjarhátíð Akurnesinga.