Fara í efni

Jón og Óskar, úra- og skartgripaverslun

Jón & Óskar er alhliða úra- og skartgripaverslun, sem var stofnsett árið 1971. Verslunin er staðsett að Laugavegi 61, Kringlu og Smáralind, og er ein stærsta og glæsilegasta úra- og skartgripaverslun á Íslandi.

Eigendur og stofnendur fyrirtækisins eru Jón Sigurjónsson, gullsmíðameistari og Óskar Óskarsson,úrsmíðameistari. Verslunin var fyrst til húsa að Laugavegi 70 í 50 fermetra rými en þegar reksturinn fór að sprengja utan af sér þessa fáu fermetra stækkuðu þeir verslunina til austurs yfir í húsið við hliðina á.  Það var síðan árið 1995 sem verslunin flutti í nýtt og glæsilegt húsnæði  að Laugavegi 61 og varð þar með stærsta úra-og skartgripaverslun landsins.  

Í versluninni eru félagar í fagfélögum úra og gullsmíða og bjóða vandaða og persónulega þjónustu.  Þeir hafa umboð fyrir fjölda vörumerka en milliliðalaus viðskipti tryggja bestu verðin.

Verslunin er ein af rótgrónustu verslunum í miðbænum og hefur 40 ára reynslu og þekkingu fram að færa. 

Í versluninni er boðið upp á notalega og góða aðstöðu og sérstakt herbergi til að skoða trúlofunar-og giftingarhringa í ró og næði.  

Þeir sem ekki hafa tök á að komast í verslunina geta síðan pantað vörur í gegnum netið eða síma og fengið þær sendar með pósti. 

Boðið er upp á greiðslukortaviðskipti, léttgreiðslur og raðgreiðslur og tax-free fyrir þá sem eru að fara úr landi.

Lágmarksábyrgð á vörum er tvö ár en margar vörur eru með víðtækari ábyrgð og er það þá sérstaklega tekið fram.

Hvað er í boði