Fara í efni

Happ

Happ hefur það að leiðarljósi að stuðla að auknu heilbrigði. Hver og einn getur lagt sína merkingu í orðið heilbrigði en fyrir okkur þýðir það allt sem stuðlar að auknum lífsgæðum, orku og ánægju. Hollur matur úr hreinu hráefni. Alvöru matur, gerður frá grunni í eldhúsi okkar án aukaefna, bragð- og litarefna. Listaverk úr náttúrunni sem gleður augað jafnt sem bragðlaukana. Góðar stundir með góðum vinum. Gleði og hlátrasköll. Hreyfing. Líkamleg áreynsla. Að yfirstíga hindranir. Hugarró og friður.  Samkennd og snerting.  Ást og kærleikur.
Allt þetta er heilbrigði. Allt þetta er Happ.

Að baki Happ eldhúsinu liggur sú hugmynd að matur eigi að vera hollur og næringarríkur. Hann á að vera einfaldur en samt bragðgóður. Maturinn á að vera fallegur, litríkur og lifandi. Hann skal vera nærandi bæði fyrir sál og líkama og án stæla og tilgerðar. Matur á umfram allt að vera hreinn og ferskur. Það er sannfæring okkar að með því að neyta matar sem er óunninn og hollur getum við bætt heilsu okkar og komið í veg fyrir eða læknað ýmsa sjúkdóma. Við vonum að boðskapur Happ eldhússins rati til þín.

Hvað er í boði