Fara í efni

Húsafell útivistarleiðir

Reykholt í Borgarfirði

Húsafell hefur upp á að bjóða fjölbreyttar gönguleiðir þar sem þéttir skógar, stórbrotin gil, jöklar, dýra- og fuglalíf, auk menningaminja setja stóran svip á svæðið. 

Upplýsingakort við Hótel Húsafell er af gönguleiðum á svæðinu en einnig eru frekari upplýsingar inn á heimasíðu hótelsins, husafell.is. Leiðirnar eru: Bæjargil, Oddaleið, Kiðárbotnar, Háifoss, Hraunfossar og Kaldárbotnar. 

Húsafell er með þeim vinsælustu sumarhúsabyggðum á Íslandi en nýlega var landið Húsafell III skilgreint sem íbúðarsvæði. Hótel Húsafell hefur mikið aðdráttarafl fyrir svæðið og er að finna fjölmargar afþreyingar í kring um Húsafell, hvort það er jöklaferðir eða hellaskoðanir. 

Upphaf gönguleiða er við Hótel Húsafell en stórt upplýsingaskilti er fyrir neðan hótelið. 

Gönguleið Húsafell-Bæjargil er falleg leið þar sem útivistarfólk getur notið þeirrar sögu sem er að finna á svæðinu, kyrrðinni og útsýni. Gönguleið er vel greinileg, stikuð á köflum og er fjölfarin leið gesta Húsafells. 

Gönguleið Húsafell-Oddaleið er gullfalleg leið þar sem vatnsmiklar ár setja svip sinn á gönguleiðina. Leiðin er vel greinileg, stikuð og fjölfarin leið gesta Húsafells. 

Gönguleið Húsafell-Kaldárbotnar geymir stórfenglegt útsýni yfir Langjökul og Strút, á meðan áin Geitá liggur þétt við leiðina. Gengið er meðfram þjóðveinum, inn Kaldadalsveg, inn í Húsafellsskóg og til baka. 

Leiðin Húsafell-Kiðárbotnar liggur á sömu leið og Oddaleið en fer svo inn á flugvöll Húsafells og inn á þjóðveg. 

Leiðin Húsafell-Hraunfossar/Háifoss liggur á gamla veginum, frá Húsafellskirkju og upp að Reyðafellsskógi. Þaðan er svo hægt að fara yfir þjóðveginn og inn á vegslóða, alla leið að bílastæði við Hraunfossa. Útsýnispallur við Háafoss er að finna í Reyðafellsskógi. 

Staðsetning: Húsafell, Borgarbyggð

Vegnúmer: Hálsasveitarvegur (nr. 518), Borgarbyggð, Húsafell.

Erfiðleikastig

  • Oddaleið - Létt leið
  • Kaldárbotnar - Létt leið
  • Hraunfossar - Létt leið
  • Háifoss - Krefjandi
  • Bæjargil - Krefjandi (þrátt fyrir góðan göngustíg getur verið tiltölulega erfitt að ganga leiðina). Krefst grunn-þekkingar og líkamlegrar hreysti. Innan við fjögurra klst göngleið. 
  • Kiðárhlaup - Létt leið

Lengd:

  • Oddaleið - 4.3km
  • Kaldárbotnar - 10.7km
  • Hraunfossar - 9.3km
  • Háifoss - 6km
  • Bæjargil - 6.4km
  • Kiðárhlaup - 2.5km

Hækkun

  • Bæjargil - 450 metrar

Merkingar: Stikur á Oddaleið og merkingar á leiðinni upp í Bæjargil. Engar stikur á gönguleiðum Kaldárbotna, Hraunfossa og Háafoss. 

Tímalengd (u.þ.b.):

  • Oddaleið - 2 klst.
  • Kaldárbotnar - 3 og 1/2 klst.
  • Hraunfossar - 3 og 1/2 klst.
  • Háifoss - 2 og 1/2 klst.
  • Bæjargil - 2 klst.
  • Kiðárhlaup - 1 klst. 

Undirlag: Það er smágrýti á flestum leiðum en á Oddaleið er einnig hraun. Á leiðinni upp í Bæjargil eru stórir steinar sem þarf að fara yfir. Malbikaðir stígar eru á leiðinni að Kiðárhlaupi og Hraunfossum. 

Hindranir á leiðum: Það eru þrep á öllum leiðum nema að Kiðárhlaupi.

Þjónusta á svæðinu: Hótel Húsafell þjónustar gesti og gangandi.

Lýsing: Engin lýsing

Árstíð: Gönguleiðirnar eru opnar allan ársins hring. 

GPS hnit upphafspunktar: N64°41.9304 W020°52.2730

GPS hnit endapunktar: N64°41.9304 W020°52.2730